Fór í ræktina í dag.
Fór eftir planinu sem þjálfarinn gerði fyrir mig.
Labbaði/skokkaði í 10 min og fór svo að lyfta.. það gekk vel og
ætla ég að fylgja þessu prógrami næstu 3-4 vikunar, og svo
þyngja. Þegar ég var búin að lyfta þá hjólaði ég í 10
min. Teygði svo vel eftir á. 
Þegar ég vaknaði í morgun fékk ég mér stórt vatnsglas. og svona
leit svo dagurinn út :
mm. Fruit'n fibre og lýsi
hm. Fitty brauð með LL og osti og kókómjólk.
km. Subway skinka og kalkúnn í honey oat brauði með káli og
honey mustard sósu.
Og er að drekka núna stórt vantsglas yfir TV.
Jamm ég veit.. allt of lítið sem ég er að borða... verð bara svo
sjaldan svöng.. og þegar ég er ekki svöng þá er ekkert sem minnir
mig á að borða mat. 
Var að skoða gamlar færslur mínar.. ótrúlega fyndið að 2 árum
eftir að ég byrjaði er ég enþá að tala um hvað ég er gleymin að
borða mat.
Og mjög sorglegt ... eitt af elstu húsum bæjarins eru brunninn..
og alveg magnaður skemmtistaður um leið. Hvar á ég að djamma
næst þegar ég fer út ?? 
Gleðilegt sumar.. vona að það frjósi vel í nótt og að við fáum
alveg magnað sumar 