síðan ég byrjaði með þessa síðu og síðan ég byrjaði í átakinu mínu.
Það hefur sko margt gengið á síðan ég byrjaði Dottið í alveg svakalegt þunglyndi.. orðið alveg rosalega ástfangin, hrapað aftur niður... gefist upp og byrjað aftur.. náð að hrista af mér 12 kg Endurskoðað mig og markmið mín. Djammað alveg heilan helling og eignast alveg fullt af nýjum vinum. Já þessir 300 dagar hafa verið alveg frábærir með öllum sínum kostum og göllum
Hlakka mikið til að byrja í 7 vikna átaki í Baðhúsinu á miðvikudaginn... og hlakka mikið til að sjá hvernig næstu 300 dagar verða í lífi mínu.. vona að ég fái að kveðja fleirri en 12 kg á næstu 300 dögum..
Það verður spennandi að sjá En allavega þá er ég smá skotin núna og það verður gaman að sjá hvert það mun leiða mig
Vona að þið eigið allar góðan dag .. allavega eins góðan og ég
Bið að heilsa ykkur gellur.. á þessum yndislega degi
» 4 hafa sagt sína skoðun
Þá er ég búin að ákveða að taka mig á ...
Ég hringdi í baðhúsið og skráði mig á námskeið sem er að byrja þar núna á miðvikudaginn næsta, 7 vikna námskeið.. og ætla ég að setja markmiðið á 5 kg á þessum 7 vikum... ekki slæmt
Svo horfið ég alltaf á þáttin á stöð 2.. You are what you eat.. og punkta allt niður og ætla sko aldeilis að fara eftir því
Núna er bara að standa sig, og vera dugleg að mæta í tímana..og komast í kjólinn fyrir jólin.. allavega fyrir árshátíðina sem er væntalega í febrúar
Já alveg rétt.. horfðu ekki allir á þáttinn hennar Sýrríar ? Gaman að sjá hvað stelpunar lýta vel út.. alveg frábært hjá þeim.. mig langaði svo að fara, en ég var bara svo lengi að vinna þennan dag
Bið að heilsa
» 1 hafa sagt sína skoðun
Vá... gærdagurinn var sko furðulegur..
sko á fimmtudaginn fæ ég e-mail frá mínu fyrrverandi sem ég er margoft búin að tala um hérna. og svo í gær var ég á msn og þá byrjaði hann að tala við mig...sem þróaðist út í það að við hittumst. Og við spjölluðum saman í 3 eða 4 tíma í gær. Og allt er bara í góðu á milli okkar núna... reyndar á hann kærustu þannig að við erum ekki að byrja saman, en vá hvað ég er ánægð að hann hafi bara talað við mig
Kíkti svo í bæinn í gærkvöldi.. var bara driver ... það var bara fínt
fór í ræktina á mánudaginn.. í body attack.. brilliant.. daginn eftir labbaði ég svo 3 km og lyfti og gerði góðar magaæfingar.. mataræði ekki til mikillilar fyrirmyndar.
er enn að vinna í nýja planinu mínu og nýju markmiðunum... læt þau hingað inn þegar ég er búin að klára þau.
» 3 hafa sagt sína skoðun
Jæja þá er ég komin í dagvinnu og oriðn vaktstjóri og tek á öllu því sem því fylgir.. þetta gengur alveg ágætlega var sam svolítið dösuð eftir fysta dagin og fór ekki í ræktina eins og ég hafði huxað mér. Búin að passa það sem ég læt ofan í mig. en sam ekki verið ströng. Svo í dag er ég í fríi og þá ætlaði ég að vera svo dugleg í ræktinni og þá er hringt og ein er veik og ég þarf að taka næturvakt í kvöld.. ég sem var að vona að þetta væri búið hjá mér
Ég er að huxa um að skrifa niður ný takmörk.. og lýta á þetta frá örðu sjónarhorni.. allt í einu er ég farin að þyngjast .. og er farin að vera svolitið löt að fara í ræktina.. ég vona að það sé bara tunglstaðan sem lætur mig vera svona.. En allavega þá ætla ég að endurskoða hltuina og reyna að sjá hvernig ég get bætt mig og hvað ég get lagað og hvað ég er að gera vitlaust.. og hvernig ég get fengið mig til að gera hlutina rétt.
Vona að ykkur gangi vel