Núna tekst það !

Hellúúú

28.05.2006 21:57:48 / dorak

7000

Jamm ég er númer 7000 til að heimsækja síðuna mina.

Ég hef ekki endilega verið að skella mér í ræktina upp á síðkastið.. en ég hef dugleg að fara ut að labba.  Um helgina skellti ég mér í næstum 3 ja klukkutíma göngutúr.. mjög hressandi.. svo fór ég í ræktina um kvöldið og bætti við 2 km á brettinu og 1/2 í róðravéllinni. 

Ég og frænka mín  ætlum að taka kellogs special K áskorunni og ætlum við líka að gera 200 magaæfingar á dag í viku og bæta svo við 100 í vikunni þar á eftir. Svo var hún að segja mér frá manni sem æfði sig að húlla hvern einasta dag í viku og hann náði að minnka heilan helling um magann og mittið.. þannig að núna húlla ég daglega líka ;)

Núna sit ég og horfi á tv og er að éta blómkál og brokkolí.. nammi namm.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 21:39:48 / dorak

Mánudagur

Ahh ég vaknaði bara snemma í morgun og fór í sveitaferð með stráknum mínum.. var mikið labba í miklu roki þannig að ég ákvað að það væri næg hreyfing fyrir mig í dag.

Ætla ekki að setja inn meira í dag.. ætla að fá mér djús sem ég bý til sjálf með djúsvélinni :)

Bið að heilsa


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 22:24:27 / dorak

AHH það kom að þvi !!

Ok ekki búin að vera eins dugleg eins og ég vonaði..  hef ekki farið í ræktina síðustu viku.. en það er aðalega vegna þess að ég var veik í tvo daga og svo var ég að taka aukavaktir.  Ég er búin að kaupa mér aðrar buxur, það er betra að hafa tvennar til skiptanna og þá hef ég enga afsökun lengur ;).

Á morgun ætla ég að skella mér í ræktina og láta mæla mig og vikta mig svo að ég sjái hvað ég er búin að bæta mikið á mig undanfarnar vikur... :^).. og svo bara halda áfram ótrauð og ná markmiðunum mínum. 

Svo bara halda áfram að hreyfa mig og borða hollan mat.. þarf að vera samt duglegri að borða fimm ávexti á dag 8|

Bið að heilsa


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 22:43:47 / dorak

Júhú

ég fór í bol í gær sem ég hef ekki farið i  í nokkra mánuði vegna þess að hann var orðinn svo þröngur á mig.. og getið þið hvað.! hann var smá víður.. vá ég hélt að ég myndi sko missa mig :lol:

Ég hef farið í ræktina alla þessa viku.. og í gær fór ég með frænku minni í ræktina og kíktum við í tíma sem heitir Body Jam í sporthúsinu.. það er verið að kenna manni smá dansspor.. en ég held samt að ég muni ekki nota þau á Pravda neitt á næstunni.. en vá hvað það var gaman.. og ég dansaði svo mikið og ég svitnaði svo mikið... alveg magnað.. svo eftir tímann þá var ég í svo miklu stuði að ég hljóp hálfan kílómeter og fór svo í róðravélina og tók þar 1 km.. næst lyftum við og tókum svo magaæfingar og teygðum svo vel á eftir þetta magnaða púl.

Svo í vinnunni í dag löbbuðum við upp á 9 undu hæð..

og svo verð ég nú að játa eitt.. mig langaði svo mikið i nammi þegar ég var komin heim.. en ég ákvað að fá mér ekki neitt.. langar ekki að skemma árangur minn. :haha:

ég er svo stollt af mér núna.. usss.. en ég ætla samt að hafa smá nammidag á morgun.. það er sko loforð :P

Góða helgi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 20:21:47 / dorak

Jæja..

Ég er ennþá á beinu brautinni.. fór reyndar ekki í ræktina í gærmorgun eins og ég ætlaði mér.. íþróttafötin mín voru nefnilega enþá rök þegar ég vakanði þannig að ég fór í staðinn í ræktina eftir vinnu.. og er farin að draga frænku mína með mér...hún hefur ekki hreyft sig í mörg ár.. og við þurfum að missa svipað mörg kg..

Einnig skelltum við okkur í dag.. og fórum í ljós eftir ræktina.. og vá hvað ég svitnaði svakalega mikið i ræktinni í dag.. usss.. sem betur fer er ég búin að panta mér nýjar íþróttabuxur þannig að þá þarf ég ekki að bíða eftir að buxunar þorni áður en ég fer í ræktina.

Bið að heilsa


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 22:14:29 / dorak

1.mai.

Jæja ég fór í ræktina á laugardaginn og lika í gær.. tók svo svakalega á rassvöðvunum að það er alveg yndislegt að finna til svona í rassinum.. 8| hehe..

Ég ákvað einmitt að fara í ræktina í gær þar sem ég vissi að ég kæmist ekki í dag .. þar sem ég var að vinna í dag og ræktinn var með skertann opnunartíma.. þannig að í dag var hvíldardagur.. en á morgun verður tekið á þvi .. þá ætla ég mér að vakna snemma og fara í ræktina áður en ég vakna.. og ég verð bara að segja það stelpur að mig hlakkar rosalega mikið til :D

Svo er bara mataræðið farið að fylgja með núna.. ohhh ég er svo ánægð.. það er greinilegt að sumarið er komið í minn líkama.. ég finn alveg hvað ég blómstra mikið.  ;)  Ætli ég sé ekki bara high á lífinu núna.. ahhh frábært..

Núna þarf ég reyndar bara að fara að finna fleirri uppskriftir af hollum mat.. og experimenta í eldhúsinu minu.

Ég er farin núna.. þarf að gera safa fyrir morgundaginn..

Bið að heilsa :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun